RÚV
15. mar. 2021

Kvikmynd Svölu Hannesdóttur og Óskars Gíslasonar, Ágirnd, hneykslaði fólk þegar hún var frumsýnd 1955. Lögreglustjórinn í Reykjavík stöðvaði sýningar á myndinni að beiðni biskups.
Kvikmyndin Ágirnd er 35 mínútna kvikmynd án orða sem byggist á látbragðsleiknum Hálsfestinni eftir Svölu Hannesdóttur. Svala lék einnig í myndinni og leikstýrði. Hún er því fyrsta konan til að leikstýra kvikmynd á Íslandi. Óskar Gíslason, frumkvöðull í kvikmyndagerð á Íslandi, framleiddi og kvikmyndaði en Ágirnd fékk óblíðar móttökur í blöðum landsins þegar hún var sýnd.
Myndin lýsir því hvernig einn og sami hluturinn verður valdur að ógæfu manna af ýmsum þjóðfélagsstigum. Eins og kemur fram í Bíólandi, nýrri heimildarþáttaröð Ásgríms Sverrissonar um íslenska kvikmyndasögu, þótti það hneykslanlegt að bera á borð fyrir Íslendinga að þeir væru á einhvern hátt siðspilltir.
Myndin sýnir prest stela hálsfesti af konu eftir að hann veitir henni nábjargirnar, sem þótti ósvífið og prestastéttin reis upp á afturfæturna. Eftir nokkra daga stöðvaði lögreglustjórinn í Reykjavík sýningar á myndinni að beiðni biskups. Þegar sýningar hófust á ný eftir afléttingu bannsins var aðsókn lítil og þeim því fljótlega hætt. Í tímans rás hefur myndin hins vegar öðlast nokkurn költ-status, kannski fyrst íslenskra kvikmynda. Hlusta hér