top of page

Breyta Reykja­vík í kvikmyndagallerí út mánuðinn

  • 22 hours ago
  • 1 min read

Vegfarendur um miðborg Reykjavíkur munu út mánuðinn sjá borgina umbreytast í kvikmyndagallerí þegar hreyfimyndum verður varpað á byggingar og skjái víðsvegar í tilefni af Physical Cinema Festival sem tengist Stockfish-kvikmyndahátíðinni. 


Stockfish verður haldin í tíunda skiptið í ár og fer fram í Bíó Paradís frá 19. til 29. mars. Á hátíðinni verður írsk kvikmyndagerð í brennidepli og áhersla lögð á verkefni upprennandi hæfileikafólks frá Norðurlöndum sem og kvikmyndir alþjóðlegra leikstjóra sem hafa nýverið hlotið verðlaun á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum.


 
 
 

Comments


bottom of page