top of page

Physical Cinema 2026 - PCF  Stigið út fyrir veggi kvikmyndahússins – bókstaflega.

Í fyrsta sinn opnuðum við fyrir opið kall, kvikmyndalista fólk frá öllum heimshornum sendi inn verk. Hugarflug, hreyfing og fjölbreytt sýn á getu kvikmyndalistar einkenndi verkin. Í öðrum liðum dagskránnar vinnum við í samstarfi við listamenn og -konur þar sem hugmyndir koma saman á margvíslegan hátt. Útkoman er dagskrá sem neitar að sitja kyrr. Sum verk birtast inni í kvikmyndahúsinu, önnur taka á sig mynd sem innsetningar víðsvegar um miðborg Reykjavíkur. 

Bíó Paradís – 26, 27og 28 mars


Dagskráin samanstendur af þremur ólíkum sýningum í Bíó Paradís:

HlustunarBíó – kvikmyndalist þar sem eyrað leiðir og augað fylgir.
Tónlistin fer með aðalhlutverkið. Í samstarfi við kvikmyndagerðarfólk eru tónlistarmenn og tónskáld á borð við Nico Muhly, Isabelle Lewis og Francesco Fabris frá Bedroom Community record label meðal þeirra sem verða með myndverk í Sal 2.
Hljóð- og tónskáld vinna með kvikmyndagerðarfólki að gerð stuttmynda þar sem hljóð og tónlist knýr frásögnina áfram og myndefnið fylgir takti þess. Þaðan kemur heitið: Hlustunarbíó.

Opið kall
Við kynnum lifandi safn stuttra listkvikmynda frá öllum heimshornum. Í úrvalinu má finna þverfagleg verk, óvænt form og listafólk sem fer yfir mörk dans, myndlistar, gjörningalistar og kvikmyndagerðar.

Brautryðjandi konur, endursköpun í rými með umbreytingu kvikmynda- og videolistar. Sýningarstjórinn Clare Schweitzer, San Francisco Dance Film Festival valdi verk sem fagnar framlagi kvenna í kvikmynda- og vídeólist (1940-80´). Þá má nefna dansarann, danshöfundinn og vídeólistakonuna Analívia Cordeiro sem er víða talin brautryðjandi í tölvudansi og var meðal þeirra fyrstu til að samþætta stafræna tækni og kóreógrafíu á áttunda áratugnum. Á sama tíma hóf kvikmyndagerðarkonan Sara Kathryn Arledge árið 1941 vinnu við kvikmynd sína Introspection með það að markmiði að „bæta tíma við málverkið“ og rannsaka hreyfingu sem framlengingu myndlistar. Að auki þessarar dagskrá bætir PCF við völdum verkum nútímakvenna í kvikmyndagerð. Verkin minna okkur á að tilraunamennska á sér djúpar rætur og að konur hafa í gegnum tíðina endurmótað tungumál kvikmyndarinnar á einn eða annan hátt.

Handan kvikmyndahússins 

 

Physical Cinema út fyrir Bíó Paradís.

Hátíðin teygir sig út í borgarrýmið með kvikmyndalist víða um Höfuðborgarsvæðið. 

Dagana 19.–29. mars er sýning haldin í Marvaða, listamannareknurými helguðu tónlist kvenna, þar sem listamenn búsettir á Íslandi eru kynntir í samspili við kvikmyndalist brautryðjandi kvenna víðsvegar að úr heiminum.

Nálægt Bíó Paradís, verður verkið All Eyes eftir Peder Bjurman eftir Peder Bjurman, Mark Holthusen & Johannes Ferm Winkler varpað. Varpanir halda áfram við Héraðsdómur Íslands, Reykjavíkurborg og Tjarnarbíó. Á Skólavörðustíg, í 12 Tónar og í Hafnartorg Gallery verða myndbandsverk sýnd á opinberum skjám og þannig verður kvikmyndalistin færð út í almannarýmið.

Kort af verkum og sýningarstöðum verður aðgengilegt á heimasíðu okkar.

Physical Cinema Festival 2026 býður áhorfendum að hreyfa sig með hátíðinni, á milli sýninga, á milli staða, á milli hljóðs og myndar. Aðgangur að borgarinnsetningunum er ókeypis.

bio-paradis-logo_edited.jpg

Bio Paradís - sýningar   60-80 min.                     Miðar/ Tickets  tix.is - LINK VIA STOCKFISH

19.30         26 March Salur 2                                        Listening Cinema / Hlustunarbíó - Cinema where the ear leads and the eye follows. 

19.00         27 March Salur 2                                        Open Call Selection of Physical Cinema 2026

21.00         28  March Salur 2                                       Women Film Artists - Writing Their Own Cinematic Language

Marvaða EXHIBITION Opening 20 March 2026 - 18.00 - Open daily from 21 March to 29 March 2026

Festival Program

19-29 march 2026

bottom of page